Tuesday, May 18, 2010


Kæru lesendur.

Margt hefur skeð frá síðustu færslu og erfitt að gera upp á milli minninga. Um helgina fór ég til Utsunomia tvisvar. Utsunomia er höfuðborg Tochigi héraðst eins og ég hef minnst á nokkrum sinnum.


Á laugardaginn var ég fyrir gífurlegri lífsreynslu sem ég mun seint gleyma. Ég ásamt hinum skiptinemunum í Tochigi fórum og gróðursettum hrísgrjónaplöntur, rétt fyrir utan Utsunomia. Við fengum að prufa að vaða í drullunni og gróðursetja plönturnar eins og gert var áður fyrr. Við fengum einnig að sjá hvernig það er gert í dag, eða með vélum. Þær vinna þetta erfiðis verk á örstuttum tíma (allavegna miðað við okkur skptinemana).


Á sunnudaginn fór ég síðan aftur til Utsunomia. En í þetta skiptið fór ég með skpitinemunum sem eru með mér í Ashikaga Minami High School. Ásamt okkur var fósturbróðir minn, Daichi. Við tókum því rólega, borðuðum Gyoza, sem er kínverskur réttur sem japönum þykir mjög góður, og fórum í nokkrar búðir.


Ég setti inn nokkrar nýjar myndir á Google Photos síðuna mína.

Bestu kveðjur frá Nihon,

Óli.

Monday, May 3, 2010

Kaerkomnar myndir



Kaeru lesendur.

Eftir margar eftirspurnir hef eg loks akvedid ad setja inn nokkrar myndir. Eg veit thaer eru faar en verda fleirri med timanum.
Myndirnar eru adgengilegar a Google Photos sidunni minni.

Eg vona ad thid njotid.
Kvedjur,
Oli.