Thursday, June 24, 2010

Tokyo


Kæru lesendur,
Ég átta mig fullkomnlega á því að bilið milli blogga eykst með hverri færslu. Þetta vandamál er eitthvað sem ég hafði búið mig undir áður en ég ákvað að deila sögum mínum með ykkur hér á veraldarvefnum.

Frá síðustu færslu hefur margt merkilegt skeð, nú eins og til dæmis ferð til Tokyo, sem þessi færsla er að mestu leyti helguð:


Þar sem fósturbróður minn hér úti er að fara til Ameríku í næsta mánuði sem skiptinemi fór hann á svokallað fyrir-brottfarar-námskeið í Tokyo. Hann fór á föstudeginum en ég fósturmóður mín og yngri fósturbróðurinn fórum á móti honum á sunnudeginum og eyddum sunnudeginum í höfuðborginni, Tokyo.


Það eru tveir hlutir sem ég vil koma til skila áður en lengra er haldið: Íslenskan mín; orðaforði og stafsetning hefur rýrnað gífurlega síðan ég hélt frá eldfjallaeyjunni svo ég byðst forláts. Í öðru lagi er bærinn minn hér í Japan svo gífurlega ólíkur Tokyo að það mætti líkja bænum mínum við Raufarhöfn og Reykjavík við Tokyo. Þegar hugsað er um Japan kemur Tokyo eflaust ofarlega í huga flestra. Tokyo er að mögnuð borg, allavegna það sem ég hef séð að henni, því hún er svo stór að maður nær aðeins að skoða yfir lítið svæði á sólarhring.


Við skoðuðum Shinjuku og Akihabara. Þessir staðir eru mjög frægir og eflaust skemtinlegra og meira upplýsandi að lesa um þá á Wikipedia. Ég var mjög hrifin af Tokyo frá byrjun. Tokyo er mjög hrein borg, lítið um rusl og allt þaulmerkt í öfga, eins og japönum er einum lagið. Við fórum upp í eitt af háhýsunum og skoðuðum borgina frá efstu hæðinni. Háhýsi og byggingar svo langt sem augað eygir í allar áttir. Eftir það borðuðum við hádegismat og héldum til Akihabara, eitthvað sem ég hlakkaði mjög til.


Akihabara er mjög spennandi staður í Tokyo, en hann er þekktastur fyrir rafmagnsvörur og myndasögur(manga). Þegar við löbbuðum út af lestarstöðinni leið mér í fyrsta sinn í langan tíma eins og ég væri í Japan, þakin háhýsum og skyltum sem oftar en ekki eru með enskutexta á sem myndar ekkert samhengi, en enska er ótrúlega “kúl” hér í Japan. Við eyddum restina af deginum í röllt í gegnum endalausar rafmagnsvöru- og mynasögubúðir sem virtust aldrei taka enda. Maður gekk inn í búð sem virtist vera lítil en þegar maður kom inn komst maður að því að umrædda búðin væri átta hæðir. Við vorum algjörlega uppgefin í lok dagsins enda ótrúleg hljóð og sjónmengun allstaðar. Í hverri búð var J-Pop spilað sem reynir virkilega á heyrnina og hausinn á manni, en ég er orðin ansi góður í því að hrinda því frá mér í undirmeðvidundinni, en það tók langan tíma að byggja upp þolið.


Núna er svokallað regntímabil í gangi hér í Japan. Það rignir á hverjum degi og er ótrúlega heitt, í kringum 30 stig og fáránlega rakt. Það eru hrísgrjónaakrar hvert sem ég sný mér og risastór skordýr farinn að vakna til lífsins; t.d. köngulær, snákar, moskítóflugur og margar aðrar misspennandi verur.


Vil enn og aftur benda a Google Photos myndasiduna mina, thar sem thid getid myndir fra ferdinni.


Ég byð að heilsa heim,

Óli

Thursday, June 3, 2010

Sports day


Kæru lesendur.


Síðastliðin mánudag átti sér stað einn af stórviðburðum skólalífsins hérna í Japan, eða svokallaður "Sports day". Eins og nafnið gefur að kynna er um að ræða íþróttadag innan skólans. Á þessum íþróttadegi kepptu strákar í fótbolta en stelpur í blaki. Dagurinn var mjög skemmtinlegur. Allir bekkirnir, eða um 600 nemendur sem eru í um 15 bekkjum. Við strákarnir töpuðum báðum okkar leikum en stelpurnar gerðu heldur betur og lenntu í þriðja sæti. Stelpurnar tóku þessu mjög alvarlega og þegar ljóst var að þær kæmust ekki í úrslitaleikin fóru margar þeirra að háskæla.


Skólakerfið í Japan er þannig byggt upp að frá sex ára aldri fara börn í grunnskóla. Eftir sex ár í grunnskóla fara krakkarnir í "Junior High School". Þau útskrifast út honum 15 ára gömul og þeirra löggilda skólagangi lokið. Hinsvegar fara nánast allir krakkarnir í "High School" í þrjú ár. Þegar krakkarnir eru 18 ára fara um 80% þeirra í menntakóla.


Af mér er annars gott að frétta. Loksins farinn að geta skilið ansi mikið í japönskunni.


Vil enn og aftur benda a Google Photos myndasiduna mina, thar sem thid getid skodad fleirri myndir.


Byð að heilsa heim á eyjunna.

Óli