Tuesday, March 23, 2010

Fyrsta færsla


Góðan daginn, eða kvöldið.

Það fer alfarið eftir því hvar þið eruð staðsett í heinum þegar þið lesið þetta. Þegar ég skrifa þennan stutta pistil er klukkan 13:51 að staðartíma. Ég vona innilega að stafsetningin hjá mér fái ekki að líða fyrir lítin svefn síðastliðinn sólarhring.

Ég hóf ferðalagið á flugi til Kaupmannahafnar frá Keflarvíkurflugvelli og þaðan flaug ég beinustu leið til Tokyo. Ferðin tók langan tíma, eða um 14 klukkustundir í flugvél og nokkrar fleiri í bið og flugvallastússi. Að auki er tímamismunurinn hér í Japan ekki til þess að laga það. En alls er Tokyo níu tímum á undan Reykjavík.

Fyrstu kynni mín við Japan eru mjög góð. Bæði lýst mér vel á sjálfboðaliðana hjá AFS og að auki var flugvöllurinn mjög nýtískulegur & skemmtinlegur.
Næstu daga verð ég á námskeiðum hjá AFS ásamt rúmlega 200 öðrum skiptinemum.

Ég vil þakka kærlega fyrir allar þær hlýju kveðjur sem ég hef fengið síðastliðna daga.
Ólafur Bjarki Bogason

1 comment:

  1. gott að þú ert lentur safe and sound.
    hafðu það gott!
    Birta

    ReplyDelete