Kaeru lesendur.
Eg attadi mig a thvi eftir goda abendingu fra Arnori, brodur minum, ad eg hafdi litid fjallad um daglegt liferni mitt her i Japan. Thessi faersla er tileinkud minu daglega lifi;
Her i Japan er lif mitt orlitid odruvisi en a Islandi. Eg vakna klukkan 6.30, fer i sturtu og borda morgunmat. Klukkan 7.15 hjola eg a lestarstodina sem heitir Horigome. Thadan tek eg um 40 minutna lestarferd ad lestarstod naer skolanum minum. Fra henni er eg sirka 10 ad labba i skolann minn. Fyrstu 30 minuturnar i skolanum eydi eg i heimastofunni minni med krokkunum i minum bekk, bekk 3-2. Eftir thad taka skolatimar vid eda eydur, sem eg eydi i hlyjunni a kennarastofunni. Fyrir utan kennarastofuna er skolinn ekki hitadur. Thegar klukkan slaer 12.55 er komid ad hadegismat. Hann borda eg vanalega af bestu lyst enda langt sidan eg lagdi af stad ad heiman. Eftir hadegisverd taka vid fleiri timar eins og enska, textilmennt og myndmennt. Their standa til klukkan 15.30 en tha tekur vid Tennisklubbur. Thegar honum er lokid, um klukkan 18.30, tekur vid heimferdin sem tekur allt i allt heila klukkustund og er eg vanalega kominn heim i kringum 19.30-20.00. Skoladagurinn er s.s. med ferdum fram og til baka um 12 og halfur klukkutimi. Thegar eg kem heim tekur vid kvoldverdur og er eg vanalega sofnadur a slaginu 22.00 eda fyrr enda algjorlega uppgefinn eftir atok dagsins.
Nu gaetu ef til vill einhverjir spurt sig hversvegna i oskopunum eg se svona nakvaemur vardandi tima en thad er einfaldlega vegna thess ad her i Japan er timi mjog mikilvaegur vardandi allt. Modir min her uti hefur miklar ahyggjur ef eg kem seint heim o.s.frv.
I dag for eg asamt AFS i Tochigi a japanska trommutonleika. Their voru mjog flottir en full langir. Skemmtinlegast fannst mer ad deila ollum nyju hlutunum med hinum skiptinemunum og thad var mjog fyndid ad sja hversu likar sogur okkar voru vardandi lif okkar her i Japan.
Bestu kvedjur a eldfjallaeyjuna miklu, sem er mikid i frettum herna uti og veldur fosturmodur minni miklum ahyggjum.
OlafurBjarki
Þetta hlýtur að vera góð kona. Gangi þér vel , Óli minn, gaman að fá fleiri frásagnir af japanska lífinu.
ReplyDeletemikið er hún Yoko hugulsöm...
ReplyDeletedjöfull er þessi lýsing á skólagöngu þinni samt spes...maður er svo vanur þessu hérna megin, ætli ég myndi ekki bara froðufella af menningarsjokki ef ég kæmi þangað...úff
Hún fósturmóðir þín er bara áhyggjufull yfir því að þurfa að sitja uppi með þig!
ReplyDeleteDJÓK
Takk fyrir að deila með okkur upplifun þinni af japönskum skóladegi, það var virkilega gaman að sjá hvernig þú hefur það þarna úti. Þú virðist vera hjá góðu fólki þarna úti og ég vona að þú njótir þess að vera þarna og hafir það gott.
ReplyDeletekv.
Fanney frænka í langtbortaustan.