Kæru lesendur.
Margt hefur skeð frá síðustu færslu og erfitt að gera upp á milli minninga. Um helgina fór ég til Utsunomia tvisvar. Utsunomia er höfuðborg Tochigi héraðst eins og ég hef minnst á nokkrum sinnum.
Á laugardaginn var ég fyrir gífurlegri lífsreynslu sem ég mun seint gleyma. Ég ásamt hinum skiptinemunum í Tochigi fórum og gróðursettum hrísgrjónaplöntur, rétt fyrir utan Utsunomia. Við fengum að prufa að vaða í drullunni og gróðursetja plönturnar eins og gert var áður fyrr. Við fengum einnig að sjá hvernig það er gert í dag, eða með vélum. Þær vinna þetta erfiðis verk á örstuttum tíma (allavegna miðað við okkur skptinemana).
Á sunnudaginn fór ég síðan aftur til Utsunomia. En í þetta skiptið fór ég með skpitinemunum sem eru með mér í Ashikaga Minami High School. Ásamt okkur var fósturbróðir minn, Daichi. Við tókum því rólega, borðuðum Gyoza, sem er kínverskur réttur sem japönum þykir mjög góður, og fórum í nokkrar búðir.
Ég setti inn nokkrar nýjar myndir á Google Photos síðuna mína.
Bestu kveðjur frá Nihon,
Óli.
Frábært að fá meiri myndir :D
ReplyDeleteTil hamingju með afmælið um daginn vinur!
Vona að ég nái að heyra eitthvað í þér á næstunni.
Peace
Sindri