Tuesday, March 23, 2010

Dómur: Fanta White

Eins og einhver af ykkur vita er ég mikill sælkeri. Þessvegna hef ég ákveðið að tileinka litlum part af blogginu í furðulegan mat/drykk hérna í Japan.

Það fyrsta sem ég sá þegar við íslensku skiptinemarnir komum inn í Lawson, litlu sjoppuna á hótelinu, brá okkur heldur mikið þegar við rákum augun í "Fanta White". Fanta með
mjólkurbragði.


Bragð: 0/5
Fanta White bragðast svipað eins og KEA vanilluskyr. Bragðið er sætt með bland af mysukeim og vondu mjólkurbraði. Þegar ég smakkaði drykkinn fyrst datt mér helst í hug mysa, en að auki var mysuáferðin með gosi. Í staðin fyrir það að fara alla leið með mjólkurbragðið er bragðið dauft og vantskennt.


Umbúðir: 3/5
Mjög skrítnar en flottar umbúðir, eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.

Lokaeinkun: 1/5
Flottar umbúðir. Mjög ógeðslegt bragð.

Á myndinni er að auku BigKatsu BigKatsu sem er einhvernskonar svínafrauð sem sett var í djúpsteikingarpott, mjög gómsætt.

3 comments:

  1. Vinir mínir þau Björk og Svenni eru líka í Japan og skrifa reglulega um KitKat: http://tokyobs.wordpress.com/

    ReplyDelete
  2. Þetta er spennandi, takk fyrir að leyfa okkur að vera með !

    ReplyDelete